LA SIESTA Einfalt hengirúm
kr. 14.000 – kr. 16.000
Einfalt hengirúm frá La Siesta. Þolir allt að 120 kg en lágmarksfjarlægð milli festinga eru 270 cm og í 135cm hæð. Í heild er hengirúmið 300 cm á lengd, en dúkurinn sjálfur er 200 x 140 cm.
Hengirúmin eru annars vegar úr bómull og hins vegar úr HamacTex veðurþolnu efni, en öll eru þau handgerð í Kólumbíu. Bómullin er mýkri, en veðurþolna efnið er myglu og UV þolið. Veðurþolna efnið er einnig fljótara að þorna og upplitast síður. Ef ætlunin er að skilja hengirúmið eftir úti í engu skjóli, er öruggara að velja veðurþolna efnið.
Þvo má hengirúmin á 30° viðkvæmu prógrammi. Þau mega alls ekki fara í þurrkara og gæta þarf sérstaklega að greiða vel úr strengjunum við uppsetningu.