Lýsing
UPPLÝSINGAR UM VÖRU
Slitsterkar gúmmíhellur
Öryggishellur úr gúmmí eru umhverfisvæn gólflausn utan- sem og innandyra sem er hönnuð til að draga úr hættu á meiðslum vegna falls á leikvöllum, íþróttavöllum sem og almennri afþreyingu og almenningsrýmum. RUBRIG notar sína eigin nýstárlega hönnun á grunnyfirborði flísanna sem tryggir mikla höggdeyfingu. Flísarnar eru seigar og endingargóðar, þær eru sprungulausar, olíu- og bensínþolinar ásamt því að vera vatns- og frostþolinar.
Hellurnar er hægt að fá með tveimur mismunandi og misdýrum toppum.
- SBR toppur sem er til í 5 litum
- EPDM toppur sem er til í 15 litum
Hellurnar er hægt að fá í fimm mismunandi þykktum en þykktin ákvarðast af mögulegri notkun sbr fallhæð leiktækis ef á að nota hana sem fall vörn.
- 25mm
- 42mm
- 45mm
- 60mm
- 85mm
Verð getur verið mismunandi eftir topp, lit og þykkt.
Hellurnar eru festar saman með pinnum en við mælum alltaf með að líma hellurnar líka.
Vottað: DIN/EN1177:2018
L: 1000mm
B: 1000mm