Lið Naustaskóla fór með sigur af hólmi í First Lego, tækni- og hönnunarkeppni grunnskólabarna sem fram fór í Háskólabíói 19. janúar. Liðið hefur unnið sér inn keppnisrétt á Evrópumóti First Lego sem fram fer í Þýskalandi í vor. Af þessu tilefni veitti Krumma þessum flottu sigurvegurum 100.000 króna ferðastyrk fyrir Evrópumótið. Krumma óskar sigurvegurunum innilega til hamingju með þennan glæsta árangur.
Menntabúðir um upplýsingatækni í sérkennslu
Föstudaginn 28. september tekur Krumma þátt í menntabúðum um upplýsingatækni í sérkennslu. Þar munum við kynna kennslugögn í forritun og hönnun frá LEGO Education og bjóða þátttakendum að prófa efniviðinn. Áhugasömum er bent á skráningu og dagskrá hér. 
Norskt fagtímarit fjallar um íslenska hönnun KRUMMA
Norska fagtímaritið Utemiljø fjallar um KRUMMA-Flow í nýjasta tölublaði sínu og gefur vörulínunni flotta umsögn. KRUMMA-Flow

Haustsýning á námsgögnum
Þann 16. ágúst næstkomandi mun KRUMMA ehf taka þátt í árlegri námsgagnasýningu á Menntavísindasviði HÍ í Stakkahlíð. Þar munum við sýna mikið af spennandi og nýjum vörum, sérstaklega fyrir kennslu í hönnun, myndlist og raunvísindum. Við hvetjum alla kennara til að líta við í Stakkahlíðinni í næstu viku.






Gylfaflöt 7, 112 Reykjavík.